Knit Pro prjónavörurnar eru mjög vinsælar enda alveg óskaplega góðar!
Prjónarnir eru þannig að snúran er seld í sex mismunandi lengdum og er málið
á snúrunni merkt lengdinni sem hún nær með prjónunum á. Til dæmis er snúra sem merkt
er 60 cm. ekki nema 40 cm. löng en þegar búið er að skrúfa prjónana á endana verður
prjónninn 60 cm. langur. Prjónarnir eru svo í tveimur lengdum, stuttir fyrir 40 cm. snúru
(ermaprjónn) og svo langir fyrir allar aðrar lengdir. Stuttir prjónar koma frá númer 3,0 til 6,0 en
langir prjónar koma frá númer  3,0 til 15,0. Einnig eru til hringprjónar í númer 2,0 og 2,5 í 40,  60 og 80 cm.
en þá eru þeir áfastir en ekki til að skrúfa.
Þetta eru prjónar sem vert er að prufa. Þeir eru mjög léttir og liprir, fara vel í hendi
og maður getur prjónað lengur í einu því maður þreytist ekki eins mikið í höndum og öxlum.
Ef verið er að prjóna tvennt í einu á sama hringprjóni, til dæmis sokka, ermar eða vettlinga
þá eru þessir prjónar næstum því nauðsynlegir því snúran er svo mjúk og lipur og
auðveldar það prjónaskapinn heilmikið.
Allir prjónarnir eru úr birki sem er svo búið að meðhöndla vel sem gerir það
að verkum að þeir klofna síður en aðrir prjónar.

KnitPro Prjónaoddar f/40cm snúru
1,240.00 ISK
KnitPro Prjónaoddar f/40cm snúru

Loading
KnitPro Snúrur
490.00 ISK
KnitPro Snúrur

Loading
KnitPro Fastir Prjónar 2.5mm
1,345.00 ISK
KnitPro Fastir Prjónar 2.5mm

Loading
KnitPro Fastir Prjónar 2mm
1,345.00 ISK
KnitPro Fastir Prjónar 2mm

Loading
KnitPro Prjónaoddar langir
1,240.00 ISK
KnitPro Prjónaoddar langir

Loading
KnitPro Prjónar 5 í pakka 15cm
1,575.00 ISK
KnitPro Prjónar 5 í pakka 15cm

Loading
KnitPro Prjónar 5 í pakka 20cm
1,860.00 ISK
KnitPro Prjónar 5 í pakka 20cm

Loading
KnitPro Rússneskar Heklunálar
1,240.00 ISK
KnitPro Rússneskar Heklunálar

Loading
KnitPro Heklunálar
990.00 ISK
KnitPro Heklunálar

Loading
KnitPro Tvöfaldar Heklunálar
1,240.00 ISK
KnitPro Tvöfaldar Heklunálar

Loading

©2010-2012 Hjá Beggu ehf
hönnun axelrafn