addi prjónarnir eru vel þekktir, mjög góðir prjónar. Hringprjónarnir koma frá nr. 1,5 – 12,0 og eru
úr stáli. Mjög lipur snúra er í prjónunum og eru þær merktar grófleika og lengd prjónsins
sem er mjög þægilegt ef maður nennir ekki að standa upp og ná í prjónamálið!
Fimm prjónarnir koma hins vegar bæði í stál og plasti og er það vegna þess hve þungir
stálprjónarnir eru þegar þeir eru orðnir grófir. Prjónar frá númer 2,0 til 6,0 koma í stáli
en prjónar frá númer 7,0 til 12,0 koma úr plasti. Einnig eru yfirleitt til plast prjóna
númer 20,0 í fimm prjónum.