.
Baby bamboo er alveg yndislegt garn en það er 80% bambus og 20% ull. Eins og
nafnið gefur til kynna þá er þetta aðallega notað í barnaföt en auðvitað er hægt að
nota þetta í hvað sem er. Áferðin á þessu garni er alveg einstök, svo mjúk og falleg
og svolítið eins og sanseruð.
Baby bamboo kemur á 50 gramma dokkum með 95 metrum og er það prjónað á prjóna nr. 4,0.
Prjónfesta: 22 lykkjur x 28 umferðir eru 10 x 10 cm.
.
