
Óli Kristian er upphafsmaðurinn af Navia en það var lokaverkefnið hans í námi.
Fyrirtækið stofnaði hann að loknu námi árið 2004.
Navia Uno er 100% ull sem blönduð er af færeyskri ull, skoskri ull og ástralskri ull sem gerir ullina lunga mjúka og yndislega. Hún er einstaklega létt og er mjög falleg í allan fatnað, teppi og hyrnur. Í prjónablöðunum sem Navia gefur út er Uno mikið notað á grófari prjóna heldur en það er upphaflega gefið upp á og gefur ullinni allt aðra áferð. Uppgefin prjónastærð er 2,5 og kemur Uno á 50 gramma dokkum sem jafngilda 350 metrum og því svakalega drjúgt garn. Navia Uno er eins þráða ull og er því fínasta ullin frá Navia.
Prjónfesta: 31 lykkja á 10 cm.
.