
Óli Kristian er upphafsmaðurinn af Navia en það var lokaverkefnið hans í námi.
Fyrirtækið stofnaði hann að loknu námi árið 2004.
Navia Trio er 100% ull sem blönduð er af færeyskri ull, skoskri ull og ástralskri ull sem gerir ullina mjúka og góða. Navia Trio er notað í grófari peysur, fullorðins og barna og margt fleira. Navia Trio er ætlað á prjóna númer 4,5 og kemur á 50 gramma dokkum sem jafngilda 120 metrum.
Navia Trio er þriggja þráða ull og er því grófust af þeim þremur.
Prjónfesta: 19 lykkjur eru 10 cm.