
Óli Kristian er upphafsmaðurinn af Navia en það var lokaverkefnið hans í námi.
Fyrirtækið stofnaði hann að loknu námi árið 2004.
Navia Duo er 100% ull sem blönduð er af færeyskri ull, skoskri ull og ástralskri ull
sem gerir ullina lunga mjúka og yndislega. Hún er mikið notuð í allan
barna- og fullorðins fatnað, teppi og margt fleira. Navia Duo er ætlað á prjóna
númer 3,5 og kemur í 50 gramma dokkum með 180 metrum.
Navia Duo er tveggja þráða ull og er því næst fínasta ullin.
Prjónfesta: 22 lykkjur á 10 cm.