Einbandið er fínasta íslenska ullin og er til í alveg einstaklega fallegum litum.
Einbandið er prjónað á prjóna frá nr. 2,0. Mjög fallegt er að prjóna hyrnur og sjöl á
grófa prjóna eins og til dæmis 6,0 – 7,0 en eins og gefur að skilja er áferðin mjög ólík.
Mjög vinsælt er að prjóna einbandið með einum þræði af plötuloopa og er þá hægt að
fara í svipaðann lit eða einhvern allt annan til að fá meira líf í flíkina.
Einbandið kemur í 50 gramma dokkum og eru það 225 metrar.
Prjónfesta: 30 lykkjur x 40 umferðir á prjóna 2,5 eru 10 cm.
15 lykkjur x 24 umferðir á prjóna 6,0 eru 10 cm.
