Lifandi umræða


Hér ætlum við að hafa allskonar upplýsingar þar sem þið getið aldeilis tekið þátt.
Mig langar að biðja ykkur að koma með hugmyndir, senda mér myndir af
því sem þið eruð að gera úr efni, garni eða hverju sem er sem kemur úr búðinni okkar.

Allir að fylgjast með hér.

Námskeið í Rússnesku hekli

17. október, 2010

Laugardaginn 16. október kom hann Patrick í heimsókn til mín og hélt námskeið í Rússnesku hekli.
Frábært námskeið í alla staði hjá honum Patrick og er þetta hekl alveg stór skemmtilegt.

Hér koma myndir af námskeiðinu og eins og sést eiga örugglega eftir að verða mörg listaverkin frá þessum
konum í framtíðinni.
Takk fyrir daginn dömur!


H
ér er hann Patrick að fara yfir nokkur sýnishorn sem hann tók með sér og féllum við held ég bara allar
yfir þessari frábæru hettu sem hann er með. Þessi er algjör draumur fyrir vetrartímann hér á landi.


H
ér er hann að sýna okkur alveg einstaklega falleg sjöl, hekluð með mjög fallegu gatamunstri.


F
rábær hópur sem mætti á námskeiðið, allar niðursokknar í heklið.


Hér er svo afraksturinn. Fullt af prufum þar sem við lærðum að hekla fram og til baka og í hring. Slétt hekl, brugðið hekl,
kross hekl, perluhekl og ég veit ekki hvað og hvað…..


Þ
arna eru svo allar prufurnar sem voru gerðar í hring og er gaman að sjá litaval, mismunandi grófleika og mismunandi
aðferðir þarna samankomnar.

Flokkur: Spjall | Engar athugasemdir »

Þæfinganámskeiðið 14. september

15. október, 2010

Hressar og skemmtilegar konur mættu á þæfinganámskeiðið sem var 14. september og voru
fullt af hugmyndum sem fengu líf.
Magga sá um kennsluna og fræddi okkur um  undirheima þæfingar og verða án efa margar skemmtilegar
jólagjafir gerðar af þessum duglegu konum fyrir jólin.
Takk fyrir kvöldið.

Niðursokknar í þæfinguna

Hér má sjá afrakstur kvöldsins, myndir, taska, utan um seríur, álf, blóm og fleira.
Aldeilis flott!

Flokkur: Spjall | Engar athugasemdir »

Dugleg að hekla….

28. september, 2010

Mig langar alveg óskaplega til að fá myndir frá ykkur af því sem þið eruð að prjóna, hekla, sauma, hvað sem er
úr því sem þið eruð að kaupa hjá mér….  Ég get líka tekið myndirnar fyrir ykkur ef þið komið til mín.

Endilega verið dugleg að senda mér myndir eða leyfa mér að mynda það sem þið voruð að gera.

Hér koma fyrstu myndirnar

Hún Fanney kemur hingað til mín oft og iðulega og er alveg einstaklega sniðug í hekli, heklar endalaust
og er með alveg frábærar hugmyndir.  Hér fáum við að sjá nokkrar þeirra.

Þennan apa heklaði hún handa góðum vini sínum. Bananinn í vasanum er meira að segja laus
þannig að apinn getur fengið sér að borða!

Algerlega hitaeiningasnauð þessi – frábær afmæliskaka sem vinkona Fanneyjar fékk.

Kaffibolli og Orio kex!  Hún á vinkonu sem þykir þessi samsetning einstaklega góð og ákvað hún því
að gefa henni eitthvað sem ekki klárast.

Þessi sirkusfíll er algjör draumur, hver myndi ekki vilja horfa á þennan endalaust!

Flokkur: Spjall | Engar athugasemdir »

Gjafahugmynd

6. september, 2010

Fyrsta  prjónakvöldið okkar var síðasta fimmtudag á Bláu könnunni og var vel mætt og mjög
skemmtilegt og þakka ég ykkur sem mættu fyrir að koma. Ég verð með prjónakvöld alltaf fyrsta fimmtudag í mánuði
á Bláu könnunni og vona ég að þið munuð sjá ykkur fært að mæta.

Ég fór aðeins yfir gjafahugmyndir á prjónakvöldinu og kynnti þar meðal annars blöð sem ég er með til sölu og eru alveg
hreint mögnuð.
Hér eru forsíðurnar á blöðunum þannig að þið sjáið aðeins hvað við vorum að skoða.

Flokkur: Spjall | Engar athugasemdir »

Að prjóna hraðar….

19. ágúst, 2010

Ég rakst á þetta myndband inni á youtube.com og ákvað að setja það hérna inn til gamans. Hér er verið að  kenna, af hraðasta prjónara
í heimi, hvernig hægt er að auka hraðann í prjóni.

Flokkur: Spjall | 1 Athugasemd »

Rússneskt hekl

13. ágúst, 2010

Í júní kom út bókin Rússneskt hekl á íslensku ef Patrick Zein og hefur hún vakið mikla eftirtekt.
Rússneskt hekl er mjög spennandi og hefur verið mikil eftirspurn eftir bókinni og rússneskum heklunálum,
sérstaklega eftir handverkshátíðina, því þar var hann ásamt Röggu Eiríks, að kynna bókina sína.
Bókin og rússneskar heklunálar eru til hjá okkur í versluninni og hvet ég nú alla áhugamenn og konur
um handavinnu að prufa!
Rússneskar heklunálar eru frá Knit Pro og þær getið þið skoðað hér.

Bókin Rússneskt hekl á íslensku

Flokkur: Spjall | 4 Athugasemdir »

©2010-2012 Hjá Beggu ehf
hönnun axelrafn