Námskeiði í þæfingu lokið: Frábært námskeið þar sem fullt af hugmyndum fengu líf.
Skoðið myndirnar í - Lifandi umræða.
Fimmtudaginn 14. október verður námskeið í blaut þæfingu og munum við byrja á að gera mynd.
Þegar því er lokið verður hægt að velja hvort gerð verður taska, hulstur fyrir gsm, jólatré eða utan
um jólaseríu. Allt eftir því hvað hentar hverjum og einum.
Námskeiðið verður frá 19:00 – 22:00, efnisgjald er innifalið.
Verð kr. 6.000
Leiðbeinandi: Margrét Steingrímsdóttir
Hægt er að skrá sig á námskeið með því að senda tölvupóst á hjabeggu@hjabeggu.is eða hringja
í verslunina í síma 578-4700.
Námskeiði í Rússnesku hekli lokið: Mjög skemmtilegt námskeið með frábærum hóp af duglegum konum.
Er ég nokkuð viss um að margar dömur úr þessum góða hóp eigi eftir að tileinka sér rússneska heklið.
Skoðið myndirnar frá námskeiðinu í - Lifandi umræða
Patrick Hassel-Zein er höfundur bókarinnar Rússneskt hekl á íslensku og verður hann með námskeið hjá
okkur laugardaginn 16. október klukkan 13.00 – 16.00. Mun hann kenna okkur alla töfraheima rússneska heklsins.
Verð kr. 6.000,-
Leiðbeinandi: Patrick Hassel-Zein.
Hægt er að skrá sig á námskeið með því að senda tölvupóst á hjabeggu@hjabeggu.is eða hringja
í verslunina í síma 578-4700.
