

Verslunin opnaði laugardaginn 7. mars 2009 rétt eftir að kreppan skall á okkur. Það voru ófáar næturnar sem lítið var sofið og mikið hugsað og pælt hvort við værum að gera rétt. Ójá við gerðum sko rétt. Aldrei hefur verið jafn skemmtilegt að vakna og fara í vinnuna og fá að vinna við áhugamálð sitt og hitta allt þetta frábæra fólk sem kemur til mín á hverjum degi. Handavinna hefur alltaf skipað stóran sess í lífi mínu því mamma hefur alltaf verið með prjónana á lofti, saumavél, heklunálar og flest það sem kemur við handavinnu. Hún rak hannyrðaverslunina Hnotuna sem naut mikilla vinsælda hér á Akureyri. Skemmtilegast finnst mér að prjóna þó að ég geri líka margt annað en prjónarnir fara aldrei langt frá mér.
Verslunarrekstur gengur ekki nema fjölskyldan standi þétt við bakið á manni og er það til fyrirmyndar í mínu tilfelli. Maðurinn minn, hann Magnús Þór sá algjörlega um uppsetninguna á heimasíðunni okkar, tók allar myndir og lærði á allt sem hægt var að læra á í sambandi við síðuna. Hann er hér með titlaður vefstjóri og tæknitröll…..
Við eigum eina dóttur, hana Jönu Rut sem vinnur með mér með skólanum í vetur en hún er að byrja á fjórða ári í textil og hönnun í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Hún er ekki mikill prjónari en hún er alltaf að sauma föt á sig og aðra. Einn son eigum við líka, hann Darra Má en hann er 14 ára. Hans hlutverk í versluninni er nákvæmlega ekkert því honum finnst þetta bara alls ekkert kúl….. Hann hjálpar til með því að vera alveg yndislegur heima fyrir og hafa fullt af þolinmæði við að hlusta stundum á okkur.
Jæja, þá held ég að þetta sé orðin ágæt kynning á okkur og gott æviágrip verslunarinnar.
Hlakka til að vera með ykkur og skiptast á hugmyndum og fréttum.
Hlökkum til að sjá þig!